Katrín H.
„Að því sögðu held ég að ég geti með nokkurri vissu sagt að tvö svör séu við því af hverju ég sáldraði glimmeri yfir þáverandi utanríkisráðherra, þarna í fyrrahaust. Eitt stutt, og annað langt og nokkuð ítarlegt svar, sem gæti jafnvel varpað ljósi á það fyrra. Stutta svarið er að það þurfti að vekja athygli bæði hans og almennings á samsekt Íslands með þjóðarmorði Ísraela í Palestínu og krefjast þess að ríkisstjórnin ryfi öll tengsl við glæpamennina.“