Í Palestínu ríkir þjóðarmorð sem hefur varpað ljósi á illsku mannsins og siðferðislega hnignun vesturlanda. Lygin og hrottaskapur ráða ríkjum og einsog konan mælti: „Án greinarmunar á sannleika og lygi skortir grundvöll fyrir muninn á góðu og illu.“ Mennskan okkar er á hættulegum slóðum og molnar einsog duft. Á slíkum tímum þarf kjark og staðfestu aldrei sem fyrr. Kristín Bjarnadóttir sem er í sambandi við margar fjölskyldur á Gaza segir fólkið hafa orð á því að á Íslandi virðist áberandi að konur fremur en karlmenn eru að hjálpa þeim á Gaza með ýmsum leiðum. Af einhverjum ástæðum virðast konur á Íslandi strax eftir 7. oktober 2023 hafa tekið baráttuna gegn ofbeldinu fyrir botni miðjarðarhafs föstum tökum. Hvunndagshetjur upp til sveita, í úthverfum og miðbænum sem efast ekki og gera skýran greinarmun góðs og ills. Miskunarleysið hefur stigmagnast síðan 7. Október.
Alda Lóa Leifsdóttir
l